Claudio Ranieri hafnaði því að taka við sem landsliðsþjálfari Ítalíu og núna virðist starfið vera á milli þriggja fyrrum liðsfélaga hjá landsliðinu.
Samkvæmt Gazzetta dello Sport er Gennaro Gattuso líklegastur til að taka við.
Samkvæmt Gazzetta dello Sport er Gennaro Gattuso líklegastur til að taka við.
En Daniele De Rossi og Fabio Cannavaro eru líka kostir. Þeir þrír urðu allir heimsmeistarar með Ítalíu árið 2006 og var það Cannavaro sem lyfti bikarnum sem fyrirliði.
Gattuso er líklegastur en hann stýrði síðast Hadjuk Split í Króatíu. Þar áður var hann stjóri Marseille, Valencia, Napoli og AC Milan.
Cannavaro hefur ekki náð eins miklum hæðum sem þjálfari og sem leikmaður, en hann var síðast með Dinamo Zagreb í Króatíu. De Rossi stýrði síðast Roma.
Allir eru þeir atvinnulausir núna og spurning hver fær það verkefni að koma Ítalíu inn á HM 2026.
Athugasemdir