Scott Parker, stjóri Burnley, kemur ekki til greina í stjórastöðuna hjá Brentford.
Thomas Frank verður kynntur sem nýr stjóri Tottenham Hotspur á næstu dögum og losnar því stjórastaðan hjá Brentford.
Parker hefur verið orðaður við stöðuna, en hann náði mögnuðum árangri með Burnley í B-deildinni á nýafstöðnu tímabili og kom liðinu aftur upp í efstu deild.
Brentford líst á marga þjálfara og mun félagið setja saman lista á næstunni, en það er ekki komið á það stig enda er það enn að ganga frá skiptum Frank til Tottenham.
Sky Sports segir Parker ekki í baráttunni um að taka við Brentford á þessari stundu, en það gæti auðvitað breyst á næstu dögum.
Athugasemdir