Leverkusen er í leit að miðverði og Jarell Quansah, leikmaður Liverpool, er efstur á óskalista þýska félagsins.
Sky í Þýskalandi greinir frá því að samtalið sé virkt á milli allra aðila. Félagaskiptin eru ótengd félagaskiptum Florian Wirtz frá Leverkusen til Liverpool.
Sky í Þýskalandi greinir frá því að samtalið sé virkt á milli allra aðila. Félagaskiptin eru ótengd félagaskiptum Florian Wirtz frá Leverkusen til Liverpool.
Þessi 22 ára gamli miðvörður spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool tímabilið 2023-2024 undir stjórn Jurgen Klopp og spilaði alls 33 leiki í öllum keppnum það tímabil. Hann var ekki í eins stóru hlutverki á síðasta tímabili undir stjórn Arne Slot en hann lék alls 25 leiki.
Sky í Þýskalandi greinir frá því að Leverkusen hafi einnig áhuga á Loic Bade, varnarmanni Sevilla.
Athugasemdir