Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fim 12. júní 2025 13:30
Elvar Geir Magnússon
Cardiff kveður Ramsey sem fer til Mexíkó
Mynd: EPA
Cardiff City hefur staðfest að miðjumaðurinn Aaron Ramsey hafi yfirgefið félagið en hann er að halda til Mexíkó þar sem hann hefur samþykkt að ganga í raðir Pumas.

Ramsey er 34 ára og var spilandi stjóri Cardiff síðustu þrjá leikina á nýliðnu tímabili eftir að Omar Riza var rekinn. Hann náði ekki að koma í veg fyrir fall liðsins niður í C-deildina.

Ramsey verður fyrsta stóra nafnið frá Bretlandseyjum til þess að spila í mexíkósku deildinni. Ramsey er 34 ára gamall og lék áður með Arsenal og Juventus.

Jamilu Collins, Raheem Conte, Anwar El Ghazi, Kieron Evans, Dimitrios Goutas og Yakou Meite hafa einnig yfirgefið Cardiff.

Félagið er í viðræðum við Brian Barry-Murphy, fyrrum akademíuþjálfara Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner