Manchester United er komið í baráttuna um Hugo Ekitike, framherja Eintracht Frankfurt í Þýskalandi.
Samkvæmt Sky í Þýskalandi er Man Utd alvarlega að skoða þann möguleika að fá Ekitike og hefur þegar lýst yfir áhuga sínum á leikmanninum.
Frakkinn hefur verið orðaður við Chelsea og Liverpool síðustu vikur, en áhugi þeirra hefur ekki þróast áfram.
Frankfurt er talið vilja um 85 milljónir punda fyrir Ekitike sem á fjögur ár eftir af samningnum.
Ekitike, sem er 22 ára gamall, skoraði 22 mörk og gaf 12 stoðsendingar í öllum keppnum með Frankfurt á síðustu leiktíð.
Athugasemdir