„Ég er mjög ánægður með að fá Gary í okkar raðir, þetta er gæðaleikmaður í hæsta flokki á Íslandi, hann getur lyft okkur á næsta level," sagði Milos Milojevic, þjálfari Víkings, um komu Gary Martin til félagsins.
Þetta eru risastór félagsskipti fyrir íslenska boltann enda hefur Gary skorað í öðrum hverjum pepsideildarleik ferilsins og ljóst að hann mun leiða sóknarlínu Víkings í sumar.
Þetta eru risastór félagsskipti fyrir íslenska boltann enda hefur Gary skorað í öðrum hverjum pepsideildarleik ferilsins og ljóst að hann mun leiða sóknarlínu Víkings í sumar.
„Ég er ekki hissa á neinu í fótbolta, þetta er fljótt að breytast," sagði Milos þegar hann spurður hvort hann væri hissa á því að hægt væri að kaupa Gary.
„Þetta var alltaf on, að sjálfsögðu var hann að kíkja á önnur lið líka og við gáfum honum tíma í það en vildum endilega klára þetta sem fyrst og í dag var ákveðið að við myndum gera þetta svona.
„Gary valdi okkur á sínum eigin forsendum, af hverju við en ekki Breiðablik. Það kemur í ljós hvaða stöðu hann kemur til með að spila í en það er alveg ljóst að hann er ekkert að spila í vörninni."
Milos segir að nú vanti félaginu aðeins einn leikmann til viðbótar til að verða samkeppnishæft í toppbaráttu Pepsi-deildarinnar.
„Við erum að tala um það í þjálfarateyminu að okkur vanti einn mann í viðbót en aðeins ef við finnum réttan mann. Það þarf að vera alvöru liðsstyrkur, ef við erum ekki öruggir þá sleppum við því. Okkur vantar í raun leikmenn í tvær stöður, ég má ekki segja hvaða stöður, en við erum með svo fjölhæfa leikmenn að okkur vantar aðeins einn mann.
„Það er ekki spurning að við ætlum okkur stóra hluti. Við fundum lyktina af Evrópukeppni síðasta sumar og okkur finnst það mjög gaman. Við erum sárir að hafa ekki farið áfram því við vorum nálægt því en við erum reynslunni ríkari.
„Við viljum keppa við bestu liðin á Íslandi og vera í harðri samkeppni við þau."
Víkingur endaði í 9. sæti Pepsi-deildarinnar í fyrra en náði 4. sætinu fyrir tveimur árum.
Athugasemdir






















