Liverpool berst við spænsku risana um Wharton - Nkunku orðaður við Liverpool - Rodrygo í enska boltann?
   lau 17. maí 2025 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
2. deild: Jordan Adeyemo með þrennu í sigri Ægis - Kwame Quee skoraði
Kwame Quee í leik með Víkingi Ó. árið 2018
Kwame Quee í leik með Víkingi Ó. árið 2018
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tveir leikir fóru fram í þriðju umferð í 2. deild í dag.

Ægir nældi í sinn fyrsta sigur en það var Jordan Adeyemo sem sá um það. Hann skoraði þrennu í 3-1 sigri gegn Kormáki/Hvöt.

KFA tapaði sínum fyrstu stigum þegar liðið tók á móti Víkingi Ólafsvík.

Marteinn Már Sverrisson kom KFA yfir strax í upphafi leiks og aðeins fimm mínútum síðar jafnaði Kwame Quee metin. Þetta var fyrsta mark hans í deildinni en hann skoraði í tapi liðsins gegn Keflavík í Mjólkurbikarnum.

Kwame snéri aftur til Víkings í síðasta mánuði en hann lék síðast með liðinu árið 2018.

Ægir 3 - 1 Kormákur/Hvöt
1-0 Jordan Adeyemo ('20 )
2-0 Jordan Adeyemo ('26 )
2-1 Kristinn Bjarni Andrason ('35 )
3-1 Jordan Adeyemo ('61 )

KFA 1 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Marteinn Már Sverrisson ('2 )
1-1 Kwame Quee ('7 )
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur V. 3 3 0 0 5 - 1 +4 9
2.    KFA 3 2 1 0 11 - 3 +8 7
3.    Haukar 3 2 1 0 7 - 3 +4 7
4.    Víkingur Ó. 3 1 2 0 6 - 3 +3 5
5.    Dalvík/Reynir 3 1 1 1 5 - 2 +3 4
6.    Ægir 3 1 1 1 4 - 3 +1 4
7.    Kári 2 1 0 1 3 - 3 0 3
8.    Kormákur/Hvöt 3 1 0 2 4 - 11 -7 3
9.    Grótta 2 0 1 1 1 - 3 -2 1
10.    Víðir 3 0 1 2 2 - 5 -3 1
11.    Höttur/Huginn 3 0 1 2 2 - 7 -5 1
12.    KFG 3 0 1 2 2 - 8 -6 1
Athugasemdir
banner
banner