Willum Þór Þórsson var kjörinn nýr forseti ÍSÍ með miklum yfirburðum en hann hlaut 109 atkvæði. Olga Bjarnadóttir sem varð önnur í kjörinu hlaut 20 atkvæði.
Willum tekur við forsetaembættinu af Lárusi Blöndal sem hefur verið forseti ÍSÍ síðustu tólf ár.
Willum tekur við forsetaembættinu af Lárusi Blöndal sem hefur verið forseti ÍSÍ síðustu tólf ár.
„Ég er mjög þakklátur niðurstöðunni en um leið þennan stuðning sem ég hlaut þá fylgir þessum mikil ábyrgð," sagði Willum við RÚV
„Við erum hér að tala um stærstu félagasamtök þjóðarinnar og mjög mikilvægan fulltrúa í vinnu við lýðheilsu og forvarnir barna og unglinga. Það er augljóst af þessu þingi að við þurfum að auka samtalið, samvinnuna, skerpa á hlutverkum í íþróttahreyfingunni, hún er stór og skipulagið þarf að vera gott. Það þarf að vera þjónandi skipulag fyrir sjálfboðaliðastarfið í hreyfingunni út um allt land."
Willum var heilbrigðisráðherra en datt út af þingi í síðustu alþingiskosningum. Eins og flestir lesendur vita vel þá er Willum öflugur þjálfari og skilaði Íslandsmeistaratitlum í hús sem þjálfari KR og Vals. KR-ingar urðu tvisvar sinnum Íslandsmeistarar undir hans stjórn og þá gerði hann Val einnig að Íslands- og bikarmeisturum á sínum tíma. Hann þjálfað hin ýmsu fótboltalið frá 1997 til 2013.
Athugasemdir