Tottenham og Newcastle hafa áhuga á Grealish - Newcastle bjartsýnt á að fá Guehi - Elanga í læknisskoðun
   þri 08. júlí 2025 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
EM kvenna í dag - Svíþjóð og Þýskaland í góðri stöðu
EM KVK 2025
Mynd: EPA
Önnur umferð í C-riðli á EM kvenna fer fram í dag. Þýskaland og Svíþjóð geta tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum.

Þýskaland vann Pólland 2-0 í fyrstu umferð og getur tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum með sigri á Danmörku en Danir geta haldið möguleikanum á lofti með sigri í dag.

Svíþjóð vann Norðurlandaslaginn 1-0 og getur því komist áfram með sigri á Póllandi sem, rétt eins og Danmörk, getur haldið sér á lífi í keppninni með sigri.

þriðjudagur 8. júlí

EM
16:00 Þýskaland - Danmörk
19:00 Pólland - Svíþjóð
Athugasemdir