Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
   mán 20. janúar 2014 13:13
Magnús Már Einarsson
Heimir Hallgríms: Búumst ekki við sambabolta
Heimir gefur skipanir á æfingu í Abu Dhabi í morgun.
Heimir gefur skipanir á æfingu í Abu Dhabi í morgun.
Mynd: KSÍ - Hilmar
Mynd: KSÍ - Hilmar
,,Menn eru auðvitað svolítið þreyttir eftir langt ferðalag. Það voru tvær æfingar í gær og ein frekar létt æfing í dag. Það eru allir heilir," sagði Heimir Hallgrímsson annar af þjálfurum íslenska landsliðsins eftir æfingu liðsins í Abu Dhabi í morgun.

Ísland mætir Svíþjóð í vináttuleik klukkan 16:00 á morgun en leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport. Ekki er um alþjóðlegan leikdag að ræða og því verður liðið talsvert breytt frá því í undankeppni HM.

,,Fyrst og fremst viljum við sjá þessa stráka. Leikirnir árið 2013 gáfu ekki tækifæri á að vera með einhverja tilraunastarfsemi."

,,Þetta er gott tækifæri að gefa þeim tækifæri að spila sem voru alltaf í hópnum en spiluðu lítið. Síðan eru líka ungir nýliðar hérna sem verður spennandi að sjá. Þeir hafa ekki skemmt fyrir sér í ferðinni hér,"
sagði Heimir en margir leikmenn í hópnum eru nýbyrjaðir á æfingum á undirbúningstímabilinu í Norðurlöndunum.

,,Við búumst ekki við einhverum sambabolta en aðalmálið er að fá það fram í leiknum sem við erum að reyna að gera. Aðalmálið er að menn séu meðvitaðir um það."

,,Við reynum að fara í okkar formúlu fyrir alla leiki og spila okkar taktík. Ef þessir strákar verða kallaðir inn í hóp seinna meir þá er sú vinna búin, þeir vita að hverju þeir ganga. Þeir vita líka hvernig við viljum hafa þetta í ferðunum og þeir ganga að því ef og þegar þeir verða valdir."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en það kemur frá KSÍ.
Athugasemdir
banner