PSG á eftir Haaland - Gordon orðaður við tvo risa - Trafford tekur Villa fram yfir Newcastle - Hvert fer Bernardo?
banner
   fös 20. febrúar 2026 21:56
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Andri byrjaði í dramatískum sigri gegn Preston
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Blackburn 1 - 0 Preston
1-0 Yuki Ohashi ('95)

Andri Lucas Guðjohnsen var í byrjunarliði Blackburn Rovers og spilaði fyrstu 67 mínúturnar í dramatískum sigri gegn Preston North End í fyrsta leik helgarinnar í Championship deildinni á Englandi.

Blackburn var sterkari aðilinn í bragðdaufum slag en tókst ekki að skora fyrr en seint í uppbótartíma.

Yuki Ohashi, sem kom inn af bekknum fyrir Andra Lucas, skoraði með skalla eftir fyrirgjöf á 95. mínútu.

Þetta er dýrmætur sigur fyrir Blackburn sem er núna sex stigum fyrir ofan fallsæti, en þó heilum ellefu stigum á eftir Preston sem er í umspilsbaráttunni.
Athugasemdir
banner