Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   mið 23. febrúar 2022 11:00
Elvar Geir Magnússon
Fengu Pedri ótrúlega ódýrt
Ramon Planes fyrrum íþróttastjóri Barcelona hefur opinberað að lokakaupverðið á miðjumanninum Pedri, sem kom frá Las Palmas sumarið 2020, endi sem tæplega 20 milljónir evra.

Þetta er þegar allt er tekið saman, allar klásúlur og slíkt, og er ótrúlega lág upphæð þegar horft er í hvaða leikmann Börsungar voru að tryggja sér.

Pedri var sautján ára þegar hann var keyptur og hefur svo sannarlega farið með himinskautum síðan. Hann var fljótur að koma sér í liðið hjá Ronald Koeman og myndaði samband við Lionel Messi.

Hann var valinn besti ungi leikmaðurinn á EM alls staðar og spilaði einnig fyrir spænska landsliðið á Ólympíuleikunum.

Hann missti af fyrri hluta yfirstandandi tímabils vegna meiðsla en hefur spilað frábærlega síðan hann kom úr meiðslum.

Barcelona er með marga unga og efnilega leikmenn en Pedri er þegar kominn í flokk með heimsklassa miðjumönnum.
Slapp
banner