Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði Keflvíkinga var tiltölulega ánægður með dráttinn í 8-liða úrslitunum í hádeginu í dag. Keflvíkingar fara á Laugardalsvöllinn og mæta þar Fram. Keflavík tryggðu sér sæti í 8-liða úrslitunum í gær með 6-1 sigri á Hamri.
,,Við fáum að fara á Laugardalsvöll. Það er alltaf gaman að spila þar og við tökum því fagnandi. Fram er verðugt verkefni en alls ekki ógerlegt. Þetta er 8-liða úrslit í bikar og það getur því allt gerst. Þetta verður spennandi," sagði Haraldur Freyr sem er spenntur fyrir því að fara á Laugardalsvöllinn fyrst þeir fengu ekki heimaleik,
,,Það er alltaf gott að fá heimaleik en það er líka gaman að spila á Laugardalsvelli."
Eins og fyrr segir unnu Keflavík 3.deildarlið Hamars í gær og var það fyrsti sigurleikur Keflavíkur í nokkuð langan tíma eftir nokkra jafnteflisleiki í Pepsi-deildinni. Hann segir að gengi þeirra í sumar hafi ekki komið leikmönnum Keflavíkur á óvart en viðurkennir að liðið hafi verið að gefa aðeins eftir að undanförnu,
,,Það vilja allir ná eins og langt og þeir geta í bikar og við erum engin undantekning á því og við ætlum að reyna klára næsta leik og koma okkur í undanúrslit."
,,Við erum kannski búnir að koma einhverjum á óvart en ekki okkur sjálfum. Við vissum alveg hvað við gætum en við erum þó búnir að slaka aðeins á klónni og höfum ekki unnið í deildinni síðan um miðjan maí þannig við verðum að fara vinna leik í deildinni."
Keflavík fer í Árbæinn á sunnudaginn og mæta þar Fylki. Haraldur býst við erfiðum leik þar,
,,Það eru allir leikir erfiðir í þessari deild, hver á sinn hátt. Það verður verðugt verkefni. Við þurfum að fara ná í þrjú stig og það er alveg á hreinu," sagði Haraldur Freyr að lokum.
Athugasemdir





















