Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
banner
   fös 21. maí 2021 20:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kári Árna: Ætla ekki að fara að gefa upp okkar leyndarmál
Kári Árnason.
Kári Árnason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er ánægjulegt að ná í öll þrjú stigin. Heilt yfir fannst mér við eiga það skilið þó það hafi verið tæpt í lokin," sagði Kári Árnason, miðvörður Víkinga, eftir 1-0 sigur á KA í toppbaráttuslag í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: KA 0 -  1 Víkingur R.

„Þeir voru mjög þéttir og það var erfitt að finna glufur. Þeir gerðu vel í fyrri hálfleik að loka svæðum. Við héldum boltanum nánast allan fyrri hálfleikinn en þeir gerðu mjög vel í að loka svæðum og gáfu fá færi á sér."

Víkingar tóku forystuna eftir um klukkutíma leik þegar Nikolaj Hansen skoraði. KA fékk tækifæri til að jafna úr vítaspyrnu í uppbótartíma en Hallgrímur Mar Steingrímsson brenndi af.

„Þetta opnaðist í seinni hálfleik og þeir komu framar á völlinn. Við náðum að refsa þeim einu sinni sem reyndist vera nóg."

„Ég er ekki viss um að þetta hafi verið víti. Ég held að það hafi verið bolti þarna á milli en ég verð að sjá þetta aftur. Ég er gríðarlega stoltur af þessum strákum, við erum orðnir helvíti sterkt lið."

Víkingar eru komnir með 13 stig á toppnum. Hvað er öðruvísi en í fyrra þar sem liðið strögglaði?

„Við erum búnir að setja áherslu á leikstjórn, hvernig leikir spilast og hvað er mikilvægt í hverjum leik fyrir sig. Við reynum að leggja upp fyrir leikina hvernig þetta mun líta út og hvernig sé hægt að tækla ákveðnar stöður. Við erum enn með okkar prinsipp... ég ætla ekki að fara að gefa upp okkar leyndarmál en við erum líka með aðrar áherslur og það gerir það að verkum að það er auðveldara að ná í úrslit og hanga á þeim."

Hægt er að hlusta á allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner