Spánn er Heimsmeistari í fyrsta skipti í sögunni og HM hinum megin á hnettinum var stórkostleg skemmtun. Það er allt á suðupunkti hér á Íslandi og 17.umferð Bestu deildar kvenna fór fram í gær. Þær Alexandra Bía og Lilja Dögg mæta á Heimavöllinn og fara yfir málin ásamt Mist Rúnarsdóttur. Í boði Dominos og Orku Náttúrunnar.
Á meðal efnis:
- Spánn heimsmeistari í fyrsta sinn
- Stórkostlegt HM og áhuginn í botni
- Stöndum saman og gerum betur
- Risa stig í botnbaráttunni
- ON og skorar tvo leiki í röð
- Opnast flóðgáttirnar í lokaumferðinni?
- Tjú tjú. Valsvélin mallar sannfærandi
- Góð stig og góð tíðindi á Akureyri
- Dominos spurningin reynir á skammtímaminnið
- Santa Lúcía og Stjarnan tekur hástökk
- Hverjar ætla að toppa á réttum tíma?
- Þetta og margt fleira í þætti dagsins.
Hlustaðu hér að ofan, í gegnum hlaðvarpsveituna þína eða á Heimavöllurinn.is
Þátturinn er í boði Dominos og Orku náttúrunnar.



