Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 21:28
Ívan Guðjón Baldursson
Arokodare fékk líka fordómafull skilaboð
Mynd: Wolves
Greint var frá því í gær þegar Wesley Fofana og Hannibal Mejbri urðu fyrir kynþáttafordómum á samfélagsmiðlum eftir 1-1 jafntefli Chelsea gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni.

Tolu Arokodare, nígerískur framherji Wolves, varð einnig fyrir barðinu á netníðingum eftir vítaspyrnuklúður í naumu tapi Wolves í dag.

Arokodare klúðraði vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks áður en Ladislav Krejci lét reka sig af velli fyrir heimskulega hegðun og endaði botnlið Wolves á að tapa 1-0.

Arokodare hefur birt skilaboðin fordómafullu á samfélagsmiðlum og verður málið rannsakað.

   22.02.2026 09:00
Fofana og Hannibal urðu fyrir fordómum eftir jafnteflið

Athugasemdir
banner
banner
banner