Igor Tudor nýráðinn þjálfari Tottenham stýrði liðinu í fyrsta sinn í dag, á heimavelli gegn toppliði Arsenal.
Arsenal var talsvert sterkari aðilinn og þó að staðan væri 1-1 í hálfleik litu lærlingar Tudor aldrei út fyrir að vera líklegir til að fara með sigur af hólmi. Lokatölur urðu 1-4 og svaraði Tudor spurningum að leikslokum.
„Erfið byrjun gegn sterku liði sem er í miklu stuði. Þeir voru miklu sterkara liðið og verðskulda sigurinn. Ég er ánægður með hugarfar minna manna en það eru mörg vandamál í þessu liði, það er ýmislegt sem við þurfum að vinna í. Þessi leikur var mikilvægur til að sjá á hvaða stað við erum. Við verðum að snúa þessu gengi við og það byrjar á æfingasvæðinu," sagði Tudor.
„Lykilatriðin fyrir okkur þessa stundina eru að vinna í varnarleiknum. Við þurfum að vera aggressívari og þéttari, þetta eru algjör lykilatriði. Róðurinn hefur verið þungur og maður sér það á leikmönnum, það þarf andleg vinna að eiga sér stað. Ég hef fulla trú á að við getum snúið þessu við.
„Það er tilgangslaust að hugsa um fallbaráttuna. Við tökum þetta eina æfingu í einu."
Tottenham er aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 29 stig eftir 27 umferðir.
„Það er alltof mikill munur á milli okkar og Arsenal en það er hollt að spila á móti þeim, þeir sýna okkur hvaða stað við þurfum að vera á til að vera samkeppnishæfir. Þetta snýst um að leggja inn mikla vinnu. Við þurfum að gleyma slæmum ávönum fortíðarinnar, við þurfum að hlaupa meira, spila betur, verjast betur og vinna einvígi og seinni bolta.
„Við undirbjuggum okkur í fjóra eða fimm daga og pressuðum þá hátt upp völlinn maður á mann. Ég sá það á strákunum hvað þeir vildu gera vel, en Arsenal voru sneggri, sterkari, orkumeiri og með meira sjálfstraust."
Athugasemdir



