Gunnlaugur Jónsson, þjálfari íA, var afar ánægður með kærkominn sigur liðsins á Keflvíkingum í kvöld.
Eftir að hafa skorað einungis fjögur mörk í fyrstu 7 leikjum sumarsins brustu flóðgáttir hjá Skagamönnum sem unnu 4-2 sigur.
Eftir að hafa skorað einungis fjögur mörk í fyrstu 7 leikjum sumarsins brustu flóðgáttir hjá Skagamönnum sem unnu 4-2 sigur.
Lestu um leikinn: ÍA 4 - 2 Keflavík
„Ég er fyrst og fremst gríðarlega ánægður með þennan sigur, þessi fjögur mörk. En leikurinn sem slíkur - við höfum nú spilað marga betri," sagði Gunnlaugur.
„Við unnum svo sannarlega fyrir þessu og höfðum loksins smá lukku í farteskinu, svo við erum hæstánægðir."
„Við vorum búnir að skora þrjú mörk í fyrri hálfleik og lenda tvisvar undir. Við komum til baka. Í seinni hálfleik vorum við hinsvegar í miklu basli og fyrsta hálftímann vorum við ekki með í leiknum."
„Árni markvörður heldur okkur inni í leiknum, ver víti og dauðafæri stuttu eftir það."
Athugasemdir






















