Heimild: mbl
Þórður Ingason, markvörður Víkings, var einn af öflugustu leikmönnum vallarins þegar Víkingur vann sigur á KA á föstudag.
Doddi, eins og hann er oftast kallaður, var til viðtals hjá mbl.is eftir leik.
Doddi, eins og hann er oftast kallaður, var til viðtals hjá mbl.is eftir leik.
Einar Sigtryggsson ræddi við Þórð eftir að markvörðurinn hélt hreinu á Dalvíkurvelli.
„Nú tala allir knattspyrnumenn um að halda sér góðum og ná endurheimt. Það er alltaf svo stutt í næsta leik. Hvernig er það með markmann sem farinn er að nálgast fertugt?" sagði Einar.
„Ég er nú bara 33 ára, slökum aðeins á,“ sagði Doddi og skellti upp úr.
„Á þriðjudaginn er heimaleikur á móti Fylki. Nú er bara endurheimt og slökun um helgina. Það er ekkert annað á döfinni það er svo mikið af leikjum. Svo vonumst við eftir góðum úrslitum á þriðjudaginn," sagði Doddi.
Er þá ekki lykilatriði að hafa góðan sjúkraþjálfara. Ég sá að ykkar maður er frá Blönduósi. Er það ekki mjög gott?" spurði Einar.
„Jú. Sjúkraþjálfarar frá Blönduósi eru betri en sjúkraþjálfarar frá Reykjavík, ekki spurning," sagði Doddi og brosti.
Ísak Jónsson Guðmann er sjúkraþjálfari Víkings. Ekki skal útiloka að Einar hafi kennt Ísaki í Menntaskólanum á Akureyri.
Leikurinn á föstudag endaði með 1-0 sigri Víkings.
Lestu um leikinn: KA 0 - 1 Víkingur R.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir