Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   þri 24. júní 2014 18:38
Elvar Geir Magnússon
Chiellini: Suarez kemst upp með að vera naðra
„Suarez er naðra og kemst upp með það því FIFA vill að stærstu stjörnurnar spili á HM. Það verður fróðlegt að sjá hvort myndbansupptökur verði notaðar gegn honum," segir Giorgio Chiellini, varnarmaður Ítalíu, sem var bitinn af Luis Suarez áðan.

„Dómarinn sá bitfarið en ákvað að gera ekkert í því."

„Þetta var skammarlegt. Úrslit leiksins réðust á ákvörðunum dómarans og ef annað liðið átti að fara áfram þá voru það við. Að gefa Marchisio rauða spjaldið en sleppa Suarez hafði úrslitaáhrif."

Stuttu eftir bitið skoraði Úrúgvæ sigurmark leiksins sem gerði það að verkum að Ítalía er úr leik en Úrúgvæ siglir áfram í 16-liða úrslitin.

Fréttir af biti Suarez:
Myndband með öllum bitum Suarez
Myndaveisla af Suarez að bíta andstæðing
Viðbrögð af Twitter
Frétt um atvikið
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.
Slapp
banner
banner
banner