Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   þri 24. júní 2014 17:45
Daníel Freyr Jónsson
Suarez beit andstæðing í þriðja sinn - Ekki meira með á mótinu?
Úrúgvæski framherjinn Luis Suarez beit í dag andstæðing sinn í þriðja sinn á ferlinum.

Í þetta sinn var það ítalski varnarmaðurinn Giorgio Chiellini sem fékk að finna fyrir bitkraft Suarez sem beit hann í öxlina að því er virtist upp úr þurru.

Atvikið átti sér stað þegar 10 mínútur voru eftir af leik Úrúgvæ og Ítalíu, en Úrúgvæar skoruðu mark skömmu síðar.

Áður hafði Suarez tekið út tíu leikja bann í ensku úrvalsdeildinni fyrir að bíta Branislav Ivanovic, varnarmann Chelsea, í leik með Liverpool á síðasta ári.

Þá tók hann út langt bann í Hollandi árið 2010 fyrir að bíta andstæðing í leik með Ajax.

Fastlega má búast við að FIFA skoði atvikið og dæmi Suarez í langt bann. Ólíklegt er því að hann taki frekar þátt í yfirstandandi Heimsmeistaramóti.

Smelltu hér til að sjá atvikið af vef RÚV
Taktu þátt í HM-umræðunni á Facebook! Smelltu hér til að fara á heimasvæði Fótbolta.net á Facebook þar sem oft skapast líflegar umræður um boltann.
Slapp
banner