ÍA tapaði 0-3 fyrir Stjörnunni á sunnudagskvöld og er í slæmum málum á botni Bestu deildarinnar. Varnarleikur liðsins hefur verið eins og gatasigti og það fengið á sig 31 mark.
Ærið verkefni bíður Lárusar Orra Sigurðssonar sem var ráðinn þjálfari Skagamanna eftir að Jón Þór var rekinn.
Ærið verkefni bíður Lárusar Orra Sigurðssonar sem var ráðinn þjálfari Skagamanna eftir að Jón Þór var rekinn.
„Ég set alveg spurningamerki að þú látir Jón Þór Hauksson fara og maður sem er ekki búinn að þjálfa í sjö ár, bara verið í sjónvarpinu, eigi að bjarga liðinu frá falli," segir Elvar Geir í Innkastinu.
„Það er augljóst að það var plan B. Formaðurinn sagði við Vísi að varaáætlun væri klár og í kjölfarið var Lárus kynntur. Þeir ætluðu sér að taka Jóhannes Karl. Þeir héldu að þeir myndu fá hann," segir Sæbjörn Steinke.
Sögur herma að Jói Kalli, sem er þjálfari AB í dönsku C-deildinni, hafi verið tilbúinn að taka við ÍA en danska félagið sett mun hærri verðmiða á hann en ÍA bjóst við. Talað er um verðmiða nálægt 50 milljónum íslenskra króna.
„Ég hef enga trú á því að ÍA bjargi sér frá falli, komist uppfyrir tvö lið. Vissulega er Lárus Orri hrifinn af varnarleik og það er fyrsta verk á dagskrá hjá þeim," segir Elvar.
Í þættinum er meðal annars rætt um hvort ekki sé þörf á nýjum markverði á Akranesi en Árni Marinó Einarsson hefur verið að gefa mörk á færibandi.
Besta-deild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Víkingur R. | 12 | 8 | 2 | 2 | 24 - 13 | +11 | 26 |
2. Breiðablik | 12 | 7 | 2 | 3 | 20 - 17 | +3 | 23 |
3. Valur | 12 | 6 | 3 | 3 | 30 - 17 | +13 | 21 |
4. Stjarnan | 12 | 6 | 2 | 4 | 23 - 20 | +3 | 20 |
5. Vestri | 12 | 6 | 1 | 5 | 13 - 9 | +4 | 19 |
6. Afturelding | 12 | 5 | 2 | 5 | 14 - 15 | -1 | 17 |
7. Fram | 12 | 5 | 1 | 6 | 19 - 18 | +1 | 16 |
8. FH | 12 | 4 | 2 | 6 | 17 - 16 | +1 | 14 |
9. ÍBV | 12 | 4 | 2 | 6 | 13 - 19 | -6 | 14 |
10. KR | 12 | 3 | 4 | 5 | 31 - 32 | -1 | 13 |
11. KA | 12 | 3 | 3 | 6 | 10 - 20 | -10 | 12 |
12. ÍA | 12 | 3 | 0 | 9 | 13 - 31 | -18 | 9 |
Athugasemdir