Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Slot: Það er mesta hrós sem Salah getur fengið
Mynd: EPA
Mo Salah hefur ekki alveg verið líkur sjálfum sér á þessu tímabili, hann hefur skorað minna og sóknarleikur Liverpool er ekki eins góður og þegar hann er upp á sitt besta.

Arne Slot, stjóri Liverpool, var spurður út í Salah á fréttamannafundi í dag.

„Hann hefur sett eigin staðal (e. standard) og hann er svo, svo hár að um leið og hann skorar ekki í nokkrum leikjum verður fólk hissa, það er líklegast mesta hrós sem hann getur fengið," segir Slot.

„Fyrir þremur leikjum lagði hann upp gegn mjög góðu liði Brighton í enska bikarnum. Það er staðreyndin. Þú getur breytt tölfræðinni og sagt að hann hafi ekki skorað í níu deildarleikjum og það er staðallinn sem hann sjálfur hefur sett."

„Ég hef fengið spurningar áður um Mo þegar hann hefur ekki skorað í þremur eða fjórum leikum, en ég veit að á endanum skorar hann alltaf aftur,"
segir Slot.

Salah var keyptur til Liverpool frá Roma 2017 og hefur skorað 252 mörk í 429 leikjum í öllum keppnum frá komu sinni. Hann skrifaði undir nýjan samning við Liverpool síðasta vor. Á þessu tímabili hefur hann skoraði fjögur mörk í 19 deildarleikjum.

Liverpool tekur á móti West Ham á morgun.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 28 18 7 3 56 21 +35 61
2 Man City 27 17 5 5 56 25 +31 56
3 Aston Villa 27 15 6 6 38 28 +10 51
4 Man Utd 27 13 9 5 48 37 +11 48
5 Chelsea 27 12 9 6 48 31 +17 45
6 Liverpool 27 13 6 8 42 35 +7 45
7 Brentford 27 12 4 11 40 37 +3 40
8 Bournemouth 27 9 11 7 43 45 -2 38
9 Everton 27 10 7 10 29 31 -2 37
10 Fulham 27 11 4 12 38 41 -3 37
11 Newcastle 27 10 6 11 38 39 -1 36
12 Sunderland 27 9 9 9 28 33 -5 36
13 Crystal Palace 27 9 8 10 29 32 -3 35
14 Brighton 27 8 10 9 36 34 +2 34
15 Leeds 27 7 10 10 37 46 -9 31
16 Tottenham 27 7 8 12 37 41 -4 29
17 Nott. Forest 27 7 6 14 25 39 -14 27
18 West Ham 27 6 7 14 32 49 -17 25
19 Burnley 27 4 7 16 29 52 -23 19
20 Wolves 28 1 7 20 18 51 -33 10
Athugasemdir
banner
banner