Bjarni Jóhannsson þjálfari KA var ánægður með stigin þrjú sem hans lið tók úr leiknum gegn Haukum í kvöld. 3-0 sigur KA staðreynd í nokkuð jöfnum og hægum knattspyrnuleik. Sigurganga KA heldur áfram í 1.deildinni eftir erfiða byrjun.
,,Við áttum engan sérstakan leik hér í dag. Það sem mér fannst við eiga framyfir þá var við höfðum meiri gæði í sóknarleiknum. Sóknarleikurinn var það sem skyldi liðin af hér í dag," sagði Bjarni sem talaði um hversu rólegur leikurinn hafi verið á köflum,
,,Það var voða rólegt yfir þessum leik. Ég veit ekki hvort að Haukunum hafi brugðið svona gott veður sem var hérna. Á köflunum var þessi leikur sýndur hægt. En við höfðum gæðin inn í teig sem skyldi liðin af," sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari KA.
Viðalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir





















