„Það hefur verið ströggl á mér í byrjun móts en þetta var gaman í dag," sagði Aron Þórður Albertsson, leikmaður HK, eftir 3-2 sigur gegn KA í dag.
Lestu um leikinn: HK 3 - 2 KA
HK var undir í leiknum þegar venjulegum leiktíma var lokið en vann ótrúlegan og langþráðan sigur eftir fimm tapleiki í röð.
„Stemningin í liðinu er ágæt og við höfum haft trú á þessu allan tímann þó við höfum verið að tapa nokkrum leikjum,"
Aron á afmæli í dag og hélt upp á daginn með því að skora sigurmarkið en viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir






















