Jón Þór Hauksson stýrði Skagamönnum í fyrsta sinn sem aðalþjálfari í 0-2 tapi á Kópavogsvelli í kvöld. Hans fyrstu viðbrögð eftir leik?
"Vonbrigði. Úrslitin eru vonbrigði, við ætluðum okkur virkilega sigur hér í dag. Byrjunin var okkur erfið en svo var ég stoltur af karakternum að koma til baka eftir fyrsta mark Blikanna. Ég var glaður að axlirnar voru uppi og andlit á mönnum, við virkilega pressuðum á þá og reyndum allt til að komast inn í leikinn. Mér fannst stígandi og framför frá því síðast, nú fáum við tvær vikur fram að næsta leik og ég veit að strákarnir hlakka mikið til hans. Þar ætlum við okkur sigur."

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 ÍA
Hvað tekur hann jákvætt út úr leiknum.
"Við héldum allan tímann áfram og munum gera það þangað til síðasti leikur í þessu móti er búinn. Menn voru að hlaupa og djöflast í 90 mínútur og ætluðu sér eitthvað."
Verkefni Skagamanna er stórt, 5 leikir eftir í deild og þeir þurfa a.m.k. 10 stig. Ráða menn við það verkefni?
"Meðan við náum ekki sigrunum þá batnar ekki staðan en við höldum áfram fram á vetur. Við erum hvergi nærri hættir."
Nánar er rætt við Jón Þór í viðtalinu sem fylgir.
Athugasemdir