Arsenal lagði fram tilboð í Gyökeres - Pogba að fara til Mónakó - Newcastle vill Pedro
Gummi Kri: Er það ekki svoleiðis sem við viljum hafa þetta?
Tufa um rauða spjaldið: Okk­ur á bekkn­um fannst hann hlaupa á Bjarna og henda sér niður
Jökull: Hefði viljað sjá okkur vera meira 'ruthless' í byrjun leiks
Alli Jói: Er svekktur með sjálfan mig
Haraldur: Kemur auka orka þegar við missum mann af velli
Gunnar Heiðar: Eins og við þyrftum að fá mark í andlitið til þess að allir kveiki á sér
Siggi Höskulds: Svekkjandi að ná ekki að halda þetta lengur út eftir að skora
„Sýnir úr hverju menn eru gerðir þegar það er búið að berja á sér"
Gunnar Már: Sérð það á liðinu að sjálfstraustið er ekkert
Gústi Gylfa eftir fyrsta Breiðholtsslaginn: Ekki slegnir út af laginu
Mætti góðum vini sínum - „Klobbaði hann og þá fékk hann alveg að vita af því"
Jóhann Birnir: Það er akkúrat það sem við ætlum að vera
Árni Freyr: Tel mig og teymið vera nægilega gott til þess að snúa þessu við
Halli Hróðmars: Getum náð í úrslit líka þó að það dynji aðeins á okkur
„Ákváðum þetta í raun bara klukkan hálf ellefu í morgun"
Agla María: Frammistaðan hefur alveg verið betri
Nik Chamberlain: Enginn vafi á því að við myndum vinna þennan leik
Pétur Rögnvalds: Óhress með sjálfan mig
Hulda Ösp: Ég var bara á réttum stað og á réttum tíma
Rakel Grétars: Það gekk ekkert upp
banner
   mán 28. júní 2021 22:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar: Ákvað að gera ekki neitt og ég stend og fell með því
Rúnar Kristins
Rúnar Kristins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var mjög súrt að tapa en held að Stjarnan hafi unnið sanngjarnan sigur. Við byrjuðum leikinn ofboðslega vel og skorum snemma. Við eigum tvö dauðafæri aukreitis í fyrri hálfleik, það eru færi sem við þurfum að nýta og eftir það finnst mér Stjarnan taka aðeins yfir leikinn og þeir spiluðu vel. Við vorum fegnir að komast í hálfleik með 1-0," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir tap gegn Stjörnunni í kvöld.

Lestu um leikinn: KR 1 -  2 Stjarnan

Stjarnan byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og KR komst lítið í boltann á upphafsmínútum hálfleiksins. Stjarnan skoraði sín mörk snemma í seinni hálfleiknum, getur Rúnar útskýrt hvernig sínir menn komu út í seinni hálfleik?

„Það er ekkert að útskýra, menn skokka bara út á völl og byrja að spila, það er enginn galdur við það. Menn ætla ekkert að vera á hælunum eða kærulausir. Við vorum það lélegir í fyrri hálfleik að við þurftum að bæta okkarr leik, byrja af krafti, mæta í tæklingar og seinni bolta sem þeir voru að vinna. Stjörnuliðið er stórt og var aggresívara en við í boxinu þegar þeir skora þetta (fyrra) mark. Það þarf stundum smá heppni til."

Rúnari fannst vanta sjálfstraust í leikmenn og trú á verkefnið. „Við bara því miður vorum ekki nægilega góðir í dag. Stjörnumenn mega fá hrós fyrir þann leik þeir sýndu, þeir voru mjög góðir."

Rúnar gerði einungis eina breytingu í dag. „Ég hefði getað notað Alex Frey (Hilmarsson) og hent honum inn á. Mér fannst þetta bara ekki leikur sem hentaði honum. Það er erfitt að taka þessar ákvarðanir en ég ákvað að gera ekki neitt. Ég stend og fell með því," sagði Rúnar.

Nánar var rætt við Rúnar og má sjá viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir