Chelsea bætist í kapphlaupið um Nunez - City tilbúið að borga 70 milljónir fyrir Livramento - Liverpool og Real Madrid slást um Schlotterbeck
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
„Viðurkenni að það er erfitt að sjá eftir svona mörgum leikmönnum“
Evrópuævintýri Blika heldur áfram - „Tekur alltaf tíma að koma með nýjar áherslur“
„Segir ekki nei þegar Víkingur vill fá þig“
„Viljum ekki fylla í hópinn bara með hveiti heldur þurfum við einhver krydd“
   þri 29. mars 2016 20:42
Hafliði Breiðfjörð
skrifar frá Aþenu.
Gylfi Þór: Fengum kennslustund gegn Dönum
Borgun
Gylfi átti frábæran leik í kvöld.
Gylfi átti frábæran leik í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi Þór Sigurðsson átti magnaðan leik í 3-2 sigri Íslands gegn Grikklandi í vináttulandsleik í Aþenu í kvöld.

Gylfi kom inn á sem varamaður í hálfleik í stöðunni 2-1 fyrir Grikkland og lagði upp tvö mörk fyrir Ísland, eitt úr aukaspyrnu á Sverri Inga Ingason og annað úr hornspyrnu fyrir Kolbein Sigþórsson.

Lestu um leikinn: Grikkland 2 -  3 Ísland

„Kærkominn sigur. Við byrjuðum leikinn bara ágætlega en gáfum mjög slappt víti. Þeir komast aðeins á bragðið með að skora fyrsta markið og bæta svo við öðru, en eftir markið hjá okkur í 2-1 fórum við aftur aðeins að keyra þetta í gang. Í seinni hálfleik skorum við tvö góð mörk en við vörðumst í heildina ágætlega. Það sem við æfðum í vikunni gekk vel, þetta hafa verið fínir fimm dagar eftir Danaleikinn," sagði Gylfi við Fótbolta.net.

„Það var gott að koma inn á. Mér fannst Grikkirnir þreytast svolítið, þeir voru kannski ekkert með sérstakt lið og hafa ekki verið góðir upp á síðkastið, þannig þegar við jöfnuðum fannst okkur auðvitað vera kominn tími til að klára þetta. Þegar við skoruðum þriðja markið var frekar auðvelt að halda þessu í 3-2."

Gylfi viðurkennir að sigurinn hafi verið kærkominn.

„Það er kominn tími til. Við höfum spilað nokkra leiki í röð án þess að vinna en þessi vika var fín fyrir okkur. Við fengum auðvitað smá kennslustund að spila gegn þessu leikkerfi hjá Dönunum, við náðum að bæta það í vikunni, Lars og Heimir fóru vel yfir það hvernig við áttum að verjast og við leikmennirnir töluðum saman um það. Þó við höfum verið að spila á móti frekar slöku liði Grikkja fannst mér þetta ganga betur upp og við vitum allir meira um það hvernig við eigum að verjast á móti þessu leikkerfi," sagði Gylfi.

„Það hefur gengið vel hjá okkur þegar við erum að sitja til baka og tímasetja pressuna. Við vorum að reyna að pressa í hvert einasta skipti á móti Dönum og það gekk engan veginn. Ég held að Lars og Heimir hafi séð það og við vorum mikið að vinna í því síðustu þrjá daga."



Athugasemdir
banner