Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   sun 29. júní 2025 19:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ingvar að glíma við kálfameiðsli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur er að spila gegn Aftureldingu þessa stundina. Það er áfall fyrir Víking að Ingvar Jónsson er ekki í markinu í dag vegna meiðsla. Pálmi Rafn Arinbjörnsson er í markinu i hans stað.

Sölvi Geir Ottesen staðfesti það í viðtali við Sýn Sport fyrir leikinn að Ingvar hafi meiðst á æfingu liðsins í gær.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 -  1 Afturelding

„Ingvar fékk aðeins í kálfann á æfingu í gær og þurfti að fara af henni og er ekki leikfæri í dag. Við erum með frábæran varamarkmann í Pálma og það verður spennandi að sjá hann í dag," sagði Sölvi Geir í samtali við Sýn Sport fyrir leikinn.

Víkingur getur endurheimt þriggja stiga forystu á Breiðablik í toppbaráttunni með sigri en Afturelding getur stokkið upp í 4. sæti, upp fyrir Vestra og Stjörnuna með sigri. Afturelding vann Víking 1-0 í fyrri leiknum í Mosfellsbæ.
Athugasemdir
banner