Chelsea og Man Utd berjast um Martínez - Nunez of dýr fyrir Napoli - Guehi nálgast Liverpool
   sun 29. júní 2025 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Maresca: Þetta er algjör brandari
Mynd: EPA
Enzo Maresca, stjóri Chelsea, segir aðstæður á HM félagsliða algjörlega hlægilegar og á hann erfitt með að skilja af hverju mótið er haldið á stöðum þar sem stöðva þurfi leiki vegna veðurs.

Chelsea var 1-0 yfir gegn Benfica þegar fimm mínútur voru eftir af leik liðanna í 16-liða úrslitum.

Þá var leikurinn stöðvaður vegna veðurs og gátu ekki leikmenn snúið aftur á völlinn fyrr en tæpum tveimur tímum síðar til að klára leikinn.

Benfica náði að jafna metin og koma liðinu í framlengingu, en Chelsea tók aftur við sér með því að skora þrjú mörk.

Maresca urðaði yfir FIFA og ákvörðun sambandsins að hafa ákveðið að halda mótið á stað sem býður ekki upp á eðlilegar veðuraðstæður.

„Við vorum með alla stjórn á leiknum í 85 mínútur en eftir þetta hlé þá breyttist leikurinn. Þetta er ekki fótbolti og þetta er örugglega sjöundi, áttundi eða níundi leikurinn sem þeir stöðva á mótinu. Mér finnst þetta vera algjör brandari svona ef ég á að vera hreinskilinn. Þetta er ekki fótbolti, alla vega ekki fyrir okkur. Það er ekki hægt að vera inn á vellinum og ég á bara mjög erfitt með að skilja þetta.“

„Ég get skilið þetta af öryggisástæðum að stöðva leikinn, en ef þú ert að gera þetta í sjö eða átta leikjum þá þýðir það sennilega að þetta sé ekki rétti staðurinn til þess að spila þetta mót.“

„Vandamálið er að þetta hættir að vera fótbolti þegar þú stöðvar leikinn. Þetta er eitthvað allat annað. Þeir skora því þeir þurftu að elta. Við erum inn á vellinum og erum að vinna, en þegar þú ferð út af vellinum þá breytist hugarfarið og allt verður erfitt. Allt var stopp í tvo tíma og svo varð leikurinn allt öðruvísi þegar hann fór aftur af stað því hraðinn var allt annað. Þannig allt er stopp í tvo tíma, fólk að tala við fjölskyldur sínar og athuga hvort það væri ekki allt í lagi. Svo var fólk að borða, hlæja, tala í símann. Þetta voru tveir tímar og þess vegna sagði ég að þetta væri ekki fótbolti.“

„Við reyndum að fara út á völlinn og halda áfram á sömu braut vitandi það að þetta yrði erfitt. Það er ekki af tilviljun að við héldum þeim í skefjum í 85 mínútur og síðan koma þessar fimm mínútur og við fáum nokkur færi á okkur. Af hverju? Jú af því þetta var allt í einu orðinn allt annar leikur,“
sagði Maresca.
Athugasemdir
banner