Christian Nörgaard, fyrirliði Brentford, er á leið til Arsenal. Það er búist við því að hann fari í læknisskoðun hjá Arsenal og svo verða félagaskiptin formlega tilkynnt.
Arsenal greiðir tíu milljónir punda fyrir Danann og getur verðmiðinn hækkað um fimm milljónir punda með árangurstengdum greiðslum.
Nörgaard kemur inn í hópinn í stað Thomas Partey sem er að fara á frjálsri sölu þar sem hann og Arsenal komust ekki að samkomulagi um nýjan samning.

Þeir Martin Zubimendi og Kepa Arrizabalaga verðir kynntir fljótlega og Arsenal er að vinna í kaupum á miðvörðinn Cristhian Mosquera frá Valencia.
Arsenal er einnig að vinna í kaupum á framherja og er stefnan líka að fá inn nýjan kantmann.
Yfirmaður fótboltamála hjá Brentford, Phil Giles, ræddi við Sky Sports um félagaskipti Nörgaard og segist hann ánægður fyrir hönd danska miðjumannsins.
„Arsenal setti sig í samband við okkur á síðustu tvemur vikum varðandi Christian, við töluðum reglulega við Andrea Berta."
„Eins og staðan er þá er þetta líklegra til að gerast en ekki, en ferlið þarf samt að klárast, tikka í öll box."
„Hann hefur verið stórkostlegur fyrir okkur, ótrúlegur. Ég er ánægður fyrir hans hönd að hann sé búinn að vinna sér inn fyrir þessu tækifæri á þessu stigi ferilsins, 31 árs, að fá tækifæri til að vinna titla."
„Þetta er ekki frágengið, en ef og þegar, þá þurfum við að fylla í skarð sem svona leiðtogi skilur eftir."
Athugasemdir