Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 14:55
Brynjar Ingi Erluson
Brexit setti strik í reikninginn hjá Caulker - „Mikil vonbrigði“
Mynd: Malaga City
Stjörnumaðurinn Steven Caulker segist hafa verið vonsvikinn að hafa ekki fengið atvinnuleyfi á Spáni þar sem hann tók við sínu fyrsta verkefni sem spilandi þjálfari.

Í desember árið 2023 var Caulker ráðinn spilandi þjálfari hjá spænska félaginu Malaga City, sem er í eigu breskra fjárfesta og spilar í neðri deildunum þar í landi.

Hann spilaði fimm leiki með félaginu en þurfti að snúa aftur heim til Englands þar sem hann fékk ekki atvinnuleyfi á Spáni.

Það ferli tekur vanalega í kringum 15 daga en starfsmenn á ræðisskrifstofunni á Spáni gátu ekki uppfært hann frekar um stöðuna og var Caulker tilneyddur til þess að segja upp störfum.

„„Það voru mikil vonbrigði og pirrandi. Það kom mér og félaginu á óvart því við héldum að flutningar frá Englandi til Spánar væru nokkuð þægilegir. Við getum þakkað Brexit fyrir að það gekk ekki upp. Ég var með ferðamannaleyfi í þrjá mánuði sem lauk og því þurfti ég að fara til baka. En þetta var reynsla og ég er mjög þakklátur því þetta hjálpaði mér á vegferð minni á þjálfaraferlinum og ég kynntist góðu fólki í leiðinni,“ sagði Caulker við Fótbolta.net.

Áður en Bretar gengu úr Evrópusambandinu gátu þeir ferðast milli landa sem eru í sambandinu, unnið, búið eða lært þar án þess að þurfa Visa-áritun. Fimm ár eru síðan Bretar gengu úr Evrópusambandinu og í dag þarf atvinnuleyfi ef viðkomandi ætlar að dvelja lengur en í 90 daga á Spáni eða öðrum löndum í Evrópusambandinu.
Aðstaðan kom Caulker skemmtilega á óvart - „Frábær vettvangur til að læra, þróa minn feril og hjálpa liðinu“
Athugasemdir
banner
banner