Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 17:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Thun
Ferðaðist í meira en þrjá tíma til að mæta á æfingu Íslands
Icelandair
EM KVK 2025
Cecilía Rán ræðir hér við markvarðarþjálfara sinn.
Cecilía Rán ræðir hér við markvarðarþjálfara sinn.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gabriel Zanon, markvarðarþjálfari kvennaliðs Inter á Ítalíu, var viðstaddur opna æfingu Íslands í Sviss í gær.

Stelpurnar okkar komu til Sviss síðastliðinn laugardag og eru núna á fullu að undirbúa sig fyrir Evrópumótið.

Íslenska liðið tók sína fyrstu æfingu í Sviss í gær og var hún opin almenningi. Einn af þeim fjölmörgu sem mætti á æfinguna var markvarðarþjálfari Inter.

Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net þá ferðaðist hann í yfir þrjá tíma til að vera viðstaddur æfinguna og ræða við fólk.

Hann ræddi til dæmis við Cecilíu Rán Rúnarsdóttur, sem hann þjálfaði hjá Inter á síðasta tímabili. Cecilía var besti markvörður ítölsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.

Cecilía mun líklega spila með Inter áfram á næsta tímabili og þá er talið afar líklegt að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir verði þar líka.

Leikir Íslands á EM 2025:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir
banner
banner