
Sandra María Jessen er í landsliðshópi Íslands fyrir EM 2025. Þetta er hennar annað stórmót, en hún var líka í hóp 2017. Það var í raun ótrúlegt að hún var á því móti þar sem hún sleit krossband nokkrum mánuðum fyrir það.
Sandra María er núna mætt til Sviss en hún kemur inn í mótið af krafti þar sem hún skoraði í æfingaleik gegn Serbíu á dögunum. Það var hennar sjöunda landsliðsmark í 54. landsleiknum.
Það sem gerir þetta athyglisverðara er að þetta var hennar fyrsta landsliðsmark í níu ár; frá því hún skoraði fyrir Ísland í 1-4 sigri gegn Danmörku á Algarve í mars 2016.
Þetta er fyrsta mark hennar fyrir Ísland eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn, en hún hefur líka gengið í gegnum meiðsli á síðustu árum sem hafa haldið henni frá fótboltavellinum.
„Hrikalega vel gert, Sandra María er búin að gera mjög vel þegar hún hefur verið senter hjá okkur. Ég er mjög stolt af henni," sagði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir eftir sigurinn gegn Serbíu.
„Þetta er fyrsta mark eftir 'baby', bara geggjað."
Leikir Íslands á EM 2025:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
3-1 sigur á Serbíu í lokaleiknum fyrir EM. Mörkin eru hér, þar á meðal glæsimark Sveindísar Jane Jónsdóttur. pic.twitter.com/hyDSKmfbxh
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) June 27, 2025
Athugasemdir