Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   mán 30. júní 2025 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sunderland að fá leikmann frá Atletico
Mynd: EPA
Reinildo Mandava er nálægt því að ganga til liðs við Sunderland á frjálsri sölu samkvæmt heimildum Sky Sports.

Mandava er 31 árs gamall vinstri bakvörður frá Mósambík en samningur hans við Atletico er að renna út.

Hann mun skrifa undir tveggja ára samning við Sunderland sem spilar í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir að hafa unnið sér sæti í gegnum umspilið í Championship deildinni.

Mandava hefur leikið 49 landsleiki fyrir Mósambík.
Athugasemdir
banner
banner