Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
   lau 04. júní 2011 21:49
Arnar Daði Arnarsson
Kolbeinn Sigþórsson: Lítum til framtíðar
Kolbeinn Sigþórsson leikmaður Íslands var að vanur óánægður með 0-2 tap Íslands gegn Danmörku í undankeppni Evrópumótsins. Þetta var ekki fyrsta tap Íslands gegn Danmörku og líklega ekki það síðasta.

,,Við hljótum að vinna þá (Danmörk) einhverntímann. En í dag virkaði þetta ekki, við eigum einhverntímann eftir að vinna Dani en það gekk ekki í kvöld," sagði Kolbeinn sem var nokkuð ánægður með spilamennskuna í fyrri hálfleik en spilamennskan síðan dalaði hjá liðinu í seinni hálfleik,

,,Mér fannst fyrri hálfleikurinn sérstaklega góður hjá okkur. Mér fannst við hafa mikið tak á þeim en í seinni hálfleiknum gefum við þeim mark og þá svona hrundi þetta hjá okkur, " sagði Kolbeinn sem spilaði á kantinum hjá íslenska liðinu í dag, eitthvað sem hann er ekki þekktur fyrir að spila,

,,Ég fílaði mig ágætlega. Ég er auðvitað ekki kantmaður en mér fannst ég hafa leyst þetta ágætlega, sérstaklega í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik náði ég mér ekki á strik en yfir heildina var þetta þokkalegt."

Ísland hafa einungis fengið eitt stig í riðlinum en Kolbeinn vill einungis líta til framtíðar,

,,Við verðum bara að líta til framtíðar og nýta þessa keppni sem undirbúning fyrir næstu keppni og verða bara betri," sagði hinn ljóshærði Kolbeinn Sigþórsson sem mun vera í stóru hlutverki í Danmörku í lokakeppni U-21 árs landsliða sem hefst næstkomandi laugardag.

Viðtalið við Kolbein er hægt að horfa í sjónvarpinu hér að ofan.
banner