Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
   þri 12. júlí 2011 23:06
Alexander Freyr Tamimi
Þorlákur Árnason: Reynum bara að safna stigum
Kvenaboltinn
Þorlákur hrósaði Ingu Birnu Friðjónsdóttur sérstaklega fyrir góðan leik.
Þorlákur hrósaði Ingu Birnu Friðjónsdóttur sérstaklega fyrir góðan leik.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Þorlákur Árnason þjálfari Stjörnunnar var mjög ánægður með seinni hálfleik sinna stúlkna í 4-0 sigrinum gegn Breiðablik í Pepsi deildinni, en þar skoruðu þær einmitt öll fjögur mörk sín.

„Þetta var góður seinni hálfleikur sem að skóp þennan sigur. Við misstum tvo leikmenn í veikindi rétt fyrir leik og þurftum að breyta svolítið miklu og það var svolítið bras, það var ekki jafnvægi í liðinu. En þegar við skiptum í hálfleik kom meira jafnvægi í liðið, munurinn á liðunum kom á ljós í seinni hálfleik,“ sagði Þorlákur við Fótbolta.net.

Ashley Bares átti frábæran leik og skoraði þrjú af mörkum Stjörnunnar, en hitt skoraði Ásgerður Stefanía Baldursdóttir úr vítaspyrnu. Þorlákur var ánægður með spilamennsku Ashley og í raun alls liðsins.

„Við erum náttúrulega með frábæran framherja, það vita það svosum allir orðið, en svo var Inga Birna líka alveg frábær í seinni hálfleik. Allt liðið var gott, þetta var einn af okkar bestu hálfleikjum í sumar, það er engin spurning.“

Eftir sigurinn í kvöld og tap Vals í Vestmannaeyjum er Stjarnan komin á topp Pepsi deildar kvenna með tveggja stiga forskot. Þorlákur vill þó að liðið sitt haldi sig á jörðinni.

„Ég held að það breyti ekki miklu, við erum bara eins og öll önnur lið að reyna að safna stigum. Þetta er jafnara en það hefur verið áður, það vita það allir, en við getum ekki farið í neinn leik áður en að undirbúa okkur vel. Ég held að þetta gefi leikmönnum bara sjálfstraust að spila vel, það er alltaf þannig. Ef þú vinnur og gengur vel er líklegra að þú vinnir næsta leik.“
banner