Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
   fös 15. júlí 2011 23:18
Arnar Daði Arnarsson
Magnús Gylfason: Erum með markaskorara sem skorar yfirleitt
Magnús ræðir við leikmenn sína í kvöld.
Magnús ræðir við leikmenn sína í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Magnús Gylfason þjálfari Hauka var himinlifandi með að taka þrjú stig úr leiknum í kvöld er Haukar mættu Víking Ólafsvík á heimavelli. Haukarnir buðu ekki upp á neinn sambabolta í leiknum í kvöld en gerðu það sem þurfti, skora mark og halda hreinu. ,,Spilamennskan var svolítið mér að kenna í kvöld," sagði Magnús til að mynda.

,,Ég var mjög ósáttur með fyrri hálfleikinn, en svona heilt yfir fannst mér þetta nokkuð jafnt en það hefði ekki komið mér neitt á óvart hefðu þeir jafnað metin, þeir eru með stóra stráka og voru að dæla boltanum inn í teiginn og Daði var sterkur í markinu og Guðmundur Viðar Mete er að koma mjög sterkur inn í hafsentinn," sagði Magnús Gylfason en Guðmundur Viðar Mete er búinn að missa af mörgum leikjum í sumar vegna meiðsla en virðist vera kominn í ágætis stand núna.

,,Heilt yfir hefði jafntefli verið sanngjörn úrslit, þeir skalla í slánna og eru að fá ágætis færi sem Daði er að verja en við vorum líka að fá góð færi og við unnum í dag og við erum með markaskorara í liðinu og hann skorar yfirleitt þegar hann spilar og ég er rosalega ánægður með það, " sagði Magnús sem talar þá um Hilmar Rafn Emilsson sem skoraði eina mark leiksins í kvöld en hann hefur verið að glíma við meiðsli eins og svo oft áður að undanförnu.

Viðtalið í heild sinni við Magnús er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
banner