Arsenal vill Brandt - Man Utd, Arsenal og Chelsea vilja Manzambi - Arsenal hefur ekki lengur áhuga á Tonali
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
   mán 18. júlí 2011 23:36
Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Brynjólfsson: Hjartað fór bara í yfirslag
Kvenaboltinn
Ólafur í áfalli eftir að hafa haldið að Þróttur hafi jafnað metin.
Ólafur í áfalli eftir að hafa haldið að Þróttur hafi jafnað metin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það var brjáluð spenna en við kláruðum þetta, sigldum þessu í höfn. Það var það sem við ætluðum okkur og gerðum, ótrúlega vel gert," sagði Ólafur Brynjólfsson þjálfari Breiðabliks eftir 0-1 sigur á Þrótti í Pepsi-deild kvenna í kvöld en fyrri leik liðanna í fyrstu umferð hafði lokið með jafntefli.

,,Það er framför, við tókum þrjú stig í staðinn fyrir eitt og á það ætlum við að leggja áherslu. Að taka þessi stig sem við höfum tapað í fyrri umferðinni og klára seinni umferðina með sæmd."

,,Það var smá stress þessar síðustu 10-15, að ætla að halda og sigla þessu í höfn. Við hefðum kannski átt að skora úr nokkrum færum en ég er ótrúlega ánægður með liðið. Þetta lítur vel út, það er sami mannskapur og bara gleði og við ætlum okkur að klára þessa leiki sérstaklega og síðan er hitt bara plús."


Þróttarar gerðu harða hríð að marki Blika í lokin og svo virtist sem þær hafi náð að skora en Birna Kristjánsdóttir markvörður Blika varði ótrúlega vel. Ólafur missti sig úr spennu og lá á endanum sjálfur í grasinu við þett tilefni.

,,Hjartað fór bara í yfirslag, það er bara þannig. Ég þurfti að ná því aðeins niður, maður er bara keppnismaður og vill vinna, það var ótrúlega sætt að sjá að Birna hafi varið svona stórkostlega."
banner
banner