,,Þetta var góð frammistaða og góður sigur. Þetta gefur okkur sjálfstraust fyrir leikinn gegn ÍA sem er næst," sagði Joe Tillen leikmaður Selfyssinga eftir 4-0 sigur liðsins á Gróttu í kvöld.
,,Þegar þú ert að vinna 3 eða 4-0 þá reyna menn að halda boltanum í lokin og við gerðum það."
,,Þegar þú ert að vinna 3 eða 4-0 þá reyna menn að halda boltanum í lokin og við gerðum það."
Selfyssingar eru í öðru sæti deildarinnar eftir þessi úrslit, níu stigum á eftir toppliði ÍA en þessi lið eigast við á Akranesi í næstu viku.
,,Þeir unnu 6-0 um daginn og við náðum því ekki alveg. Þetta verður áhugaverður leikur. Við förum með sjálfstraust í leikinn gegn þeim og vonandi getum við unnið hann líka."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























