Kæru lesendur. Í dag er miðvikudagur og því birtast tvífarar hér inn á Fótbolta.net.
Að þessu sinni fannst tvífari Andra Júlíussonar.
Andri Júlíusson er fæddur 1985. Hann hóf feril sinn á Akranesi en lék með Fram á seinasta tímabili. Auk þess lék hann með KA í stutta stund. Á komandi tímabili mun hann taka sér frí frá knattspyrnu.
Tvífari hans er leikarinn Ryan Gosling. Sá er fæddur 1980 og hefur leikið í myndum á borð við The Notebook, Remember the Titans og Drive. Hann hefur einnig vakið athygli fyrir góðgerðarstarfsemi sína og átt það til að bjarga fólki á götum New York borgar.
Í raun var þetta efni í þrífara en Bjarni Mark Duffield, leikmaður KA, er einnig nauðalíkur Ryan Gosling. Áhugasamir geta skoðað myndir af kappanum með því að smella hér.
Það var Gauti Freyr sem benti á þessa tvo. Ef þú hefur góða tillögu að tvíförum fyrir næsta miðvikudag, og vilt sjá nafnið þitt hér á síðunni, ekki hika við að hafa samband á [email protected] eða gauka þeim að mér á twitter (@jedisson).
Sjá einnig:
Smelltu hér til að sjá eldri tvífara
Athugasemdir