Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 03. ágúst 2012 12:25
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Football Italia 
Alberto Aquilani til Fiorentina (Staðfest)
Alberto Aquilani.
Alberto Aquilani.
Mynd: Getty Images
Andrea Della Valle eigandi Fiorentina staðfesti í morgun að félagið hafi gengið frá kaupum á Alberto Aquilani miðjumanni Liverpool.

Aquilani hefur verið lánaður frá Liverpool til Ítalíu undanfarin tvö ár. Fyrst til Juventus fyrir tveimur árum og svo til AC Milan í fyrrasumar en hvorugt félag vildi svo nýta sér þann rétt að kaupa leikmanninn.

Fiorentina er að byggja upp nýtt lið og hefur verið orðað við þennan fyrrverandi leikmann Roma í sumar og nú er búið að ganga frá kaupunum.

,,Við höfum fengið Aquilani," saðgi Della Valle við fréttamenn á æfingasvæði félagsins í morgun.

Leikmaðurinn kom til Flórens í dag til að fara í læknisskoðun og mun æfa með liðinu seinni partinn í dag. Talið er að kaupverðið sé 7 milljónir evra en hann mun fá samning upp á 1,7 milljón evra á ári næstu þrjú árin. Talið er að Liverpool hafi niðugreitt launin hans síðustu tvö árin.
Athugasemdir
banner
banner
banner