Boltastrákurinn í Keflavík: Átti mikinn þátt í markinu
Jökull Máni Jakobsson, boltastrákurinn í leik Keflavíkur og Vals í síðustu umferð í Pepsi-deild karla vakti heldur betur athygli.
Hann átti stóran þátt í marki Keflavíkur, þegar Hólmar Örn Rúnarsson skoraði í autt mark Vals. Jökull Máni var fljótur að hugsa, þegar Ingvar Þór Kale markvörður Vals kom langt útúr markinu og skallaði boltann í innkast.
Hann átti stóran þátt í marki Keflavíkur, þegar Hólmar Örn Rúnarsson skoraði í autt mark Vals. Jökull Máni var fljótur að hugsa, þegar Ingvar Þór Kale markvörður Vals kom langt útúr markinu og skallaði boltann í innkast.
„Ég sá þegar Ingvar Kale skallaði boltann útaf og hann var frekar framarlega. Maggi (Magnús Þórir Mattíasson) kom strax að hliðarlínunni og ég var snöggur að senda boltann á hann," sagði hinn 11 ára, Jökull Máni aðspurður út í atvikið.
Magnús Sverrir sendi síðan á Hólmar Örn sem lét vaða á markið fyrir utan teig, á meðan Kale var enn að hlaupa í markið.
„Ég var mjög ánægður þegar ég sá að Hólmar hafi skorað í kjölfarið. Ég átti mikinn þátt í þessu marki," sagði Jökull sem hefur verið boltasækir í öllum heimaleikjum Keflavíkur í sumar. Hann segist ætla halda því áfram og vonast til að geta hjálpað þeim enn meira í næstu leikjum.
„Því miður töpuðu þeir leiknum. Það er erfitt að horfa upp á þetta gengi í sumar. En þetta mun koma. Ég hef mjög mikla trú á þeim," sagði Jökull, sem er fóstursonur, Haraldar Freys Guðmundssonar varnarmanns Keflavíkur.
Keflavík situr í fallsæti deildarinnar með 4 stig að loknum átta umferðum.



