Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
   lau 12. september 2015 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gullskór Adidas afhentur eftir lokaumferð Pepsi-deildar kvenna í dag
Adidas
Fanndís Friðriksdóttir fékk Gullskóinn
Fanndís Friðriksdóttir fékk Gullskóinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag var Gullskór Adidas afhentur beint eftir lokaumferð Pepsi-deildar kvenna, en það er nýtt fyrirkomulag hjá Adidas að afhenda skóinn beint eftir síðasta leik

Fann­dís Friðriks­dótt­ir, Breiðabliki, var marka­hæst í Pepsi-deild kvenna með 19 mörk og fékk að laun­um gull­skó­inn.

Harpa Þorsteinsdóttir hjá Stjörnunni fékk þá Silfurskóinn en hún skoraði 15 mörk eins og Klara Lindberg hjá Þór/KA en Harpa spilaði færri mínútur. Klara fékk því Bronsskóinn.

Þess má geta að Gullskórinn sem Fanndís fékk er sá sami og íþróttamenn um allan heim fá fyrir að vera markahæst í sínum deildum.

Pepsi-deild kvenna:
Gullskór - Fanndís Friðriksdóttir (Breiðablik) 19 mörk
Silfurskór - Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan) 15 mörk
Bronsskór - Klara Lindberg (Þór/KA) 15 mörk
Slapp
banner