Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   fim 22. nóvember 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
Þjálfari Egypta vill að Salah fari ef Liverpool vinnur ekki titla
Mynd: Getty Images
Javier Aguirre, landsliðsþjálfari Egyptalands, vill sjá Mohamed Salah yfirgefa herbúðir Liverpool ef liðið fer ekki að vinna titla á næstunni.

Salah skoraði 44 mörk með Liverpool á síðasta tímabili og var meðal annars orðaður við Real Madrid í kjölfarið.

Hann meiddist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vor en náði þó að spila með Egyptum á HM í sumar.

Salah skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Liverpool eftir HM en Aguirre vill sjá hann fara að vinna titla.

„Það gæti verið betra fyrir hann að fara eftir þetta eða næsta tímabil ef Liveprool vinnur ekki neina titla," sagði Augirre.
Athugasemdir
banner
banner