Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. apríl 2019 18:42
Hafliði Breiðfjörð
Árás Joey Barton - Blóð flæddi úr andliti Stendel
,,Þetta olli því að blóð flæddi úr andliiti hans!!  Svona fólk á ekki skilið að vera í fótboltanum, þú ert ofbeldismaður.''
,,Þetta olli því að blóð flæddi úr andliiti hans!! Svona fólk á ekki skilið að vera í fótboltanum, þú ert ofbeldismaður.''
Mynd: Getty Images
Fleiri upplýsingar eru nú að berast frá Englandi um atvik sem átti sér stað eftir leik Barnsley og Fleedwood Town.

Joey Barton stjóri Fleedwood hefur margsannað að hann er snarruglaður og til að bæta gráu ofan á svarta sögu sína í ljótum atvikum réðist hann á Daniel Stendel stjóra Barnsley eftir leikinn.

Við höfum áður sagt frá því að lögregla hindraði för Barton frá vellinum eftir leik en nú er komið í ljós að Cauley Woodrow framherji Barnsley tísti eftir leikinn um atvikið og varpaði ljósi á málið. Tíst sem nú er búið að eyða.

„Til að byrja með er ógeðslegt að Fleedwood skuli vera með stjóra sem ræðst líkamlega á annan stjóra í göngunum. Þetta olli því að blóð flæddi úr andliiti hans!! Svona fólk á ekki skilið að vera í fótboltanum, þú ert ofbeldismaður. En í öðru lagi þá var þetta frábær sigur," sagði Woodrow eftir leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner