James Maddison, leikmaður Leicester City og enska landsliðsins, var ekki með landsliðinu í 2-1 tapinu gegn Tékklandi um helgina.
Maddison, sem hefur gert frábæra hluti með Leicester undanfarið ár, er einn eftirsóttasti sóknartengiliður Englands um þessar mundir.
Hann átti að vera í hóp enska landsliðsins gegn Tékklandi en þurfti að draga sig úr hóp vegna veikinda.
Kvöldið sem England mætti Tékklandi sást hann á spilavíti en enska knattspyrnusambandið hefur ekki tjáð sig um málið.
Myndin hefur farið víða um samfélagsmiðla en hann hefur ekki enn spilað landsleik fyrir England.
JAMES MADDISON is gambling with his England career.
— Networkofnews UK (@NetworkofnewsUK) October 13, 2019
For boss Gareth Southgate to learn he was spotted at a Leicester casino — when...https://t.co/7yACA0gNUf pic.twitter.com/c3AXFuftvl
Athugasemdir