Atli Sveinn Þórarinsson fyrirliði Vals var að vonum svekktur eftir 4-1 tap sinna manna gegn KR á Hlíðarenda í kvöld. Öll mörk KR komu á tíu mínútna kafla sem gerði út af við leikinn.
„Fyrri hálfleikurinn var allt í lagi og við hefðum átt að skora í honum en gerum það ekki. Síðan missum við einbeitinguna í fyrsta markinu og annað markið er bara eftir hornspyrnu og þar stendur hann einn í teignum og fær að setja hann frítt upp í vinkilinn,“ sagði Atli Sveinn við Fótbolta.net eftir leikinn.
„Í stöðunni 2-0 gerist svipað og í Breiðabliks leiknum og þeir ganga á lagið og skora tvö mörk og eftir það er leikurinn bara búinn. Það er ótrúlega stutt á milli markanna en leikurinn er ekki búinn í stöðunni 1-0. Síðan kemur 2-0 og þá missa menn hausinn.“
„Við erum greinilega ekki betri en það að við töpum 4-1 gegn KR á heimavelli. Liðið er ekki betra en úrslitin, það er bara svoleiðis.“
Viðtalið við Atla Svein má sjá í heild sinni hér að ofan.























