Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   fim 23. apríl 2026 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Grátbiður Chelsea um að kaupa leiðtoga í sumar - „Verðskulda ekki að spila fyrir félagið“
Mynd: EPA
Fyrrum Chelsea-maðurinn Frank Leboeuf er kominn með algerlega nóg af frammistöðu liðsins og segir leikmenn ekki verðskulda að spila fyrir félagið.

Chelsea er í mikilli lægð og lítur allt út fyrir að það muni ekki spila í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Fimmta tapið kom eftir ömurlega frammistöðu gegn Brighton á þriðjudag og sagði Liam Rosenior að hann hafi aldrei orðið vitni að öðru eins á ferlinum, sem voru hans síðustu ummæli sem stjóri félagsins því sólarhring síðar var hann látinn fara.

Leboeuf segir Chelsea vanta leiðtoga og tók sérstaklega fram að Moises Caicedo og Enzo Fernandez væru því miður ekki með þann hæfileika.

„Við vorum leikmenn og við getum séð. Fyrrum liðsfélagi minn, Marcel Desailly, sagði það sem höfum verið að segja allan þennan tíma og það er að við erum ekki með leiðtoga í liðinu. Við þurfum markvörð, miðvörð og miðjumann sem gegna þessu hlutverki.“

„Caicedo og Enzo eru ekki leiðtogar. Mér þykir leiðinlegt að segja það, en ég hef séð leiðtoga. Ég spilaði með Dennis Wise, Craig Burley og Roberto Di Matteo á miðjunni. Þetta voru allt leiðtogar og líka þeir Desailly, Steve Clarke og með þá Vialli, Gullit og Zola fremsta. Allt leikmenn sem náðu miklum árangri á tíma mínum hjá félaginu og tala nú ekki um það sem við sáum þegar liðið var í eigu Roman Abramovich. Nú hef ég fengið mig fullsaddan og í augnablikinu verðskulda þessir leikmenn ekki að spila fyrir Chelsea. Þeir eru ekki nógu góðir.“

„Ég veit ekki hverju er hægt að breyta á þessari stundu, en ég grátbið stjórnina um að kaupa leiðtoga fyrir næstu leiktíð, annars mun Chelsea aldrei verða aftur það Chelsea-lið sem við þekkjum,“
sagði Frakkinn.
Slapp
banner
banner