Tómas Bent Magnússon spilar ekki meira með Hearts á tímabilinu vegna meiðsla í læri. Hearts er á toppi skosku úrvalsdeildarinnar þegar fimm umferðir eru eftir.
Þessi 23 ára miðjumaður er með þrjú mörk í 27 deildarleikjum en hefur misst af síðustu þremur vegna kinnbeinsbrots og svo þessara meiðsla í læri.
Hearts hefur ekki orðið skoskur meistari síðan 1960 en liðið er með eins stigs forystu í þriggja hesta kapphlaupi um skoska titilinn. Hearts er með 70 stig, Rangers 69 og Celtic 67.

Rangers hefur verið á besta skriðinu að undanförnu af þessum liðum að undanförnu en gríðarlega spennandi lokaumferðir framundan. Hearts á bæði eftir að mæta Rangers og Celtic.
Tómas Bent er á sínu fyrsta tímabili með Hearts en þessi fyrrum leikmaður ÍBV var keyptur frá Val á síðasta ári.